Opna - Velja - Njóta

Gildir fyrir

Vax upp að hnjám 

Óskaskrín

Vax upp að hnjám

Í vaxmeðferð eru hárin fjarlægð með rót og tekur það hárið 4-6 vikur að vaxa aftur. Hárin verða mýkri en við rakstur, oft lýsast hárin við vaxmeðferð og verða strjálli. Vaxið rífur ekki í húð né skilur eftir klístraðar vax leifar. Þessum árangri er að þakka einstakri blöndu af náttúrulegum innihaldsefnum, sem ná hárum allt að 2 mm löngum. Innihaldsefnin eru með sérstökum ilmkjarnaolíum sem róa og sefa húð, fullkomnar árangur og skilar sér í ánægðum og vandlátum viðskiptavinum. 
 

Dekurstund - 9.900 kr.

Upplifunin er hluti af Dekurstund Óskaskríninu

Magn
 

Áhugavert

Dimmalimm selur vörur til að hægja á hárvexti milli vaxmeðferða auk efna tl að vinna á inngrónum hárum. Einnig er hægt að versla þessar vörur í netversluninni okkar á dimmalimm.is 

Gott að vita

Hægt er að panta fleiri vaxmeðferðir eins og vax undir höndum eða nára samhliða vaxi að hnjám gegn gjaldi samkvæmt verðskrá. 

ATH. Í 24 klst. eftir vaxmeðferð ber að varast að:

- fara í bað/sturtu/sund/heita potta

- gufu/sauna

- sólbað/ljósabekki

- bera á sig krem og sápur

Hvar

Við erum í Hraunbæ 102a (fyrir aftan Árbæjarblóm), 110 Reykjavík.

Hvenær

Kynnið ykkur opnunartíma á dimmalimm.is

Mikilvægt að panta með fyrirvara og afpanta með 24klst. fyrirvara ef breytingar verða. 

Bókanir

Í síma 557-5432 á opnunartíma og á vefnum okkar dimmalimm.is allan sólarhringinn.